Nýtt í kvöld: kenía - land ævintýranna

Sjö þátta sería um ferðir Íslendinga til Kenía í Austur-Afríku hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld, en þar er slegist í hóp með góðum hópi ferðalanga sem upplifa ævintýralendur þessa fjarlæga lands.

Dýraríki Kenía er fjölskrúðugra og tignarlegra en víðast hvar í heiminum og þá er að finna í landinu ættbálka sem lítið hafa breyst í háttum sínum í þúsund ár, ef ekki meira - og má því segja að allt lífið í landinu sé einstakt, að ekki sé talað um náttúruna sjálfa á þessum slóðum.

Þættirnir eru hálftíma langir, en upptökustjórn þeirra var í höndum Péturs Steingrímssonar kvikmyndagerðarmanns sem hefur lagt til fjöldann allan af fróðlegum ferðalífsþáttum í þriggja ára sögu Hringbrautar.

Kenía - land ævintýranna hefst klukkan 20:30 í kvöld.