Það er farið um lönd og strönd í Ritstjóraþætti vikunnar með tveimur sjóuðum ritstjórum, blaða- og fréttamönnum, þeim rt og sme, en meðal umræðuefna verða svik stjórnvalda við almenning sem stóð í þeirri meiningu að tiltölulega nýsamþykktar vegabætur yrðu ekki sviknar kortéri eftir kosningar.
Sumsé, klandur Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra er til tals í þættinum sem nú er hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar, svo og ósamstiga ríkisstjórnarflokkar sem eiga ákaflega erfitt með að leyna sundurlyndi innan sinna raða.
Einkavæðing viðskiptabankanna er einnig til umræðu, einkum sú spurning hvort almenningur geti treyst stjórnvöldum í þeim efnum og sömu mistökin og frá því í upphafi aldarinnar verði ekki endurtekin. Gestir Sigmundar Ernis í þættinum, þeir Sigurjón Magnús Egilsson, sem nú ritstýrir vefnum miðjan.is og Reynir Traustason, blaðamaður á Stundinni og fyrrverandi ritstjóri DV eru algerlega þeirra skoðunar að stjórnvöld búi við algert vantraust í þessum efnum - og \"ríkisstjórn fjárfesta\" sem nú sé við lýði muni ekki geta selt bankana svo sómi verði að. Þeir segja enn fremur að ekki hjálpi það til að samfélagið sé nú statt í fordrykk næsta fyllerís, þótt óneitanlega felist í því sú mótsögn að í allri uppsveiflunni nú um stundir, sem svo er kölluð, hafi þjóðarbúið ekki efni á að reka almennilegt heilbrigðis-, mennta- og vegakerfi - og eigi þess utan varla fyrir vörnum sínum, lögum og reglu.
Svo er nokkrum tíma varið í sóðaskap Íslendinga, nákvæmlega þá staðreynd að Ísland mengar langtum meira en íbúar þess töldu í sakleysi sínu.
Ritstjórarnir eru fumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.