Nýtt fríblað gegn femínisma og kynvillu

Kristilega sjónvarpsstöðin Omega hefur hafið blaðaútgáfu, en nýtt blað hennar sem nefnist Betra land, lofar loftárásir Vladimirs Pútins á Sýrland og hampar honum sem \"nútíma krossfara\". Í blaðinu er lagst gegn femínisma, kynvillu og fóstureyðingum.

 \"Það er e.t.v. kaldhæðnislegt, að Pútín hefur tekið við stöðu nútíma krossfara, og sett Rússland í hlutverk síðasta verjanda Kristinnar trúar,“ segir í umræddri frétt þar sem Rússlandsforseta er hælt á hvert reipi.

Blaðið er gefið út í 117 þúsund eintökum og er því dreift ókeypis um land allt. Ritstjórinn Guðmundur Örn Ragnarsson, sem jafnframt er forstöðumaður Samfélags trúaðra, segist í samtali við Stundina í dag að Rússland hafi tekið við af Bandaríkjunum í að halda uppi vörnum góðra siða: \"Nú eru Bandaríkin að brjóta niður trúna, styðja kynvillu og fóstureyðingar og allt það. Pútín gerir allt öfugt. Hann setur lög sem fara gegn femínisma, gegn kynvillu, gegn fóstureyðingum. Allt öfugt, en þessi lög voru við lýði í Bandaríkjunum,“ segir Guðmundur Örn við vefinn, en hann gerir sér vonir um að hægt verði að gefa út blaðið í nokkurn tíma, en verkefnið sé þó kostnaðarsamt: \"Það hefur ekki gengið vel hjá okkur á Omega að fá inn auglýsingar. Auglýsendur eru oft hræddir við trúmálin, að þeir verið bendlaðir við það að þeir séu svona heittrúaðir eins og við. Eins og er þá er þetta gefið út fyrir styrktarfé alveg eins og sjónvarpsstöðin. Við höfum aldrei verið á mótið því að hafa auglýsingar,“ segir Guðmundur Örn við vefinn. 

Leiðari blaðsins fjallar um þá óvissutíma sem nú standa yfir og eru lesendur eindregið hvattir til að horfa á dagskrá Omega: \"Það er ánægjulegt að hafa tækifæri til þess að senda inn á heimili landsmanna blaðið Betra land, sem við trúum að eigi eftir að verða til mikillar blessunar fyrir marga, bæði uppörvun og trúarstyrkur á þessum tímum sem við lifum á þar sem mikil óvissa er ríkjandi og margir hlutir eiga sér stað sem er erfitt að hafa stjórn á.\"