Svæðisfélög Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Austurlandi efndu formlega til aukaaðalfunda félaganna þann 21. febrúar. Auk lögbundinna dagskrárliða var meginefni fundanna að taka afstöðu til sameiningar svæðisfélaga VG á Austurlandi. Svæðisfélög VG á Austurlandi hafa verið tvískipt – Fjarðabyggð og Djúpavogshreppur annars vegar og hins vegar Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG. Þar segir enn fremur:
Niðurstaða aðalfunda beggja félaganna var einróma að stofna eitt svæðisfélag fyrir Austurland. Í framhaldi var haldinn stofnfundur þar sem öflugt fólk var kosið í stjórn. Stjórn er þannig skipuð:
Ingibjörg Þórðardóttir Neskaupstað, Kristján Ketill Stefánsson Fljótsdalshéraði og Svandís Egilsdóttir Seyðisfirði. Til vara Arnar Guðmundsson Neskaupstað og Árni Kristinsson Fljótsdalshéraði. Þá segir í tilkynningu Vg:
„Ljóst má vera að hér eru um ákveðin tímamót að ræða í pólitísku starfi á Austurlandi. Í fullri einingu hafa nú Svæðisfélög Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Austurlandi sýnt metnaðarfullt fordæmi og brotið blað í sögunni með sameiningu á svæðisvísu.“