Lifandi mítlar grassera við augun

Áhugaverðir fræðsluþættir um sjónina og augnlækningar hófu göngu sína á Hringbraut á mánudagskvöld, en fyrri þátturinn af tveimur er endursýndur í vikunni. Þar fá áhorfendur að kynnast öllum helstu nýjungunum á þessu afmarkaða sviði heilbrigðisvísinda.

Þættirnir varpa sterku ljósi á þá miklu framþróun sem orðið hefur í augnlækningum á síðustu árum og sýna vel hvað meðferðarúrræðin eru orðin góð og fjölbreytt. Þar ber ekki aðeins að þakka æ færara fagfólki heldur og nýrri tækni og tækjum sem hefur verið að ryðja sér til rúms á nýrri öld, en þar hefur þróunin orðið svo hröð að líkja má við tæknibyltingu.

Þá leynist ýmis fróðleikur í þáttunum sem almenningur hefur sjálfsagt ekkert verið að velta fyrir sér þegar kemur að auganu og augnumgerðinni, svo sem þeirri staðreynd að ótal lifandi mítlar lifa í kringum augað, 0,3 til 0,5 millimetrar að stærð, en þessar pöddur eru sníkjudýr og geta á stundum valdið miklum óþægindum í og við augað, þótt þær truflu ekki alltaaf starfsemi þess, jafnvel þóttt þær sé þar að finna í miklu magni.

Í fyrri þættinum um sjónina, sem er á dagskrá í kvöld klukkan 21:30 er fjallað um lazeraðgerðir með aðstoð Ólafs Más Björnssonar, augnlæknis og hans sérfræðiteymis, en auk þess kynnir Gunnar Már Zoega, augnlæknir og Sigurlaug Guðrún Guðmundsdóttir, augnhjúkrunarfræðingur hvað er til ráða við augnþurrki sem er mun algengari en flestir halda. Þá er rætt við sjúklinga sem hafa dásamlegar sögur að segja af umskiptunum, fyrir og eftir aðgerð og meðferð. 

Í seinni þættinum, sem er á dagskrá næsta mánudagskvöld verður svo fjallað um aðgerðir á augasteinum og augnbotnum.

Þættirnir eru unnir í samvinnu við Sjónlag. Haukur Sigurbjörnsson annast kvikmyndatöku og klippingu og umsjón og upptökustjórn er í höndum Sigmundar Ernis Rúnarssonar.