Nýtt dómsmálaráðuneyti

Um næstu mánaðamót tekur til starfa nýtt dómsmálaráðuneyti. Forseti Íslands staðfesti fyrir helgi tillögu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs Íslands.

Málefnasvið þessa nýja ráðuneytis verður hið sama og var þegar þessi málaflokkar tilheyrði innanríkisráðuneytinu. Þó með þeirri undantekningu að þjóðskrá og fasteignamat eru um kyrrt í því ráðuneyti.