Nýjasta viðbótin á frétta- og upplýsingavefnum hringbraut.is er zetan, en svo nefnist síðan sem geymir margvíslegt skemmti- og afþreyingarefni fyrir fólk sem vill fylgjast með tísku og tíðarandanum, straumum og stefnu og því sem hæst ber í trendi líðandi stundar.
Zetan verður fyrst og síðast fjölþætt efnissíða - og eins og lesendur hafa þegar orðið varir við er henni ekki mannlegt óviðkomandi. Inn á síðuna mun rata margt af því helsta sem er á milli tanna fólks í samtímanum , hvort heldur sem það tengist menningu, heilsu, tísku, útliti og fræga fólkinu heima og erlendis.
Það er von stjórnenda Hringbrautar að zetan breikki ásýnd vefjarins og geri hann enn betri og líflegri en verið hefur.