Hann var bæði fjörlegur og hláturmildur þátturinn sem hóf göngu sína á Hringbraut í gærkvöld, en þar er á ferðinni skemmtilegt samtal um eitt það mikilvægasta í lífi fólks, vináttuna.
Lóa og lífið er heiti þáttarins, en þar fær Þórdís Lóa Þórhallsdóttir til sín pör af öllu tagi; vini, hjón, samstarfsfélaga, mæðgin, feðgin og hvað þetta heitir nú allt sem tengir fólk saman tryggðaböndum - og umræðuefnið er vináttan og samveran og hláturinn í lífinu, en einnig hætturnar sem geta steðjað að góðum vinskap og gildin sem þarf að halda í heiðri til að hann haldist, gjarnan ævina á enda.
Fyrstu gestir Lóu í gærkmvöld voru vinirnir og samstarfsfélagarnir Felix Bergsson og Margrét Blöndal, en útvarpsþáttinn Bergsson & Blöndal þekkja flestir landsmenn enda hafa þau Felix og Magga verið heimagangar hjá þjóðinni allar helgar á Rás 2 í fjölda mörg ár.
Þátturinn verður frumsýndur á þriðjudagskvöldum klukkan 20:00 í vetur, en einnig er hægt að horfa á hann í heild sinni á vef stöðvarinnar daginn eftir frumsýningu, en hann er svo endursýndur í dag og svo á föstudags- og sunnudagskvöld.