Nýtist strax til að fjölga leiguíbúðum

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík kveðst fagna mjög framkomnum tillögum Eyglóar Harðardóttur húsnæðismálaráðherra um að leggja þeim húsnæðisfélögum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni sérstaka stofnstyrki svo þau geti byggt upp húsnæðisúrræði fyrir fólk undir ákveðnum tekju- og eignamörkum. Dagur segir tillögur ráðherra algerlega í anda þess sem yfirvöld í borginni hafi verið að hugsa um að undanförnu hvað varði verulega fjölgun félagslegra íbúða í Reykjavík. Í því samhengi hafa verið nefndar 500 íbúðir á vegum borgarinnar á allra næstu misserum fyrir utan samstarf hennar við leigu- og búseturéttarfélög sem starfa ekki í gróðaskyni.


Í frumvarpi húsnæðismálaráðherra um stofnstyrkina er lagt til að framlag ríkisins verði í formi eigin fjár en sveitarfélögin leggi til lóðir og gatnagerðargjöld.


Viðvarandi húsnæðisskortur er í mörgum helstu þéttbýlisstöðum landsins og hefur leiguverð lítilla og meðalstórra íbúða aldrei verið hærra í sögunni.