Guðni Th. Jóhannesson, nýr forseti lýðveldisins sagði á Þjóðbraut, nú sunnudagsmorgun að hann væri enn að „máta“ sig í hlutverki forseta og bað um svigrúm til þess. Hann vildi alls ekki sleppa við gagnrýni á sín orða eða störf en bað þjóðina um svigrúm á meðan hann væri að tileinka sér nýtt hlutverk sem þjóðarleiðtogi. Hann hafi fundið í kosningabaráttunni að hann þyrfti harðari skráp þegar kæmi að því að eiga í rökræðum við menn. „En núna er tími til að slíðra sverðin“, sagði Guðni og átti við að Davíð Oddsson sem harðast gagnrýni Guðna fyrir skrifa hans um þorskastríðin og Iceave, hafi á einlægan hátt óskað honum til hamingju með sigurinn í sjónvarpsútsendingu í gærkvöldi. Guðni sagðist verða forseti sem segi umheiminum frá helstu sjónarmiðum í pólitískum deilumálum hér á landi en tæki ekki þátt í þeim sjálfum. Hann sagðist þess viss um að hann nyti trausts allra flokka þegar kæmi að stjórnarmyndunarviðræðum eins hans verkefni í haust þegar vísast verður kosið verður til Alþingis. Guðni tekur formlega við embættinu 1.ágúst.