Nýsköpun og togarar fortíðar

Annar þáttur Bryggjunnar er á dagskrá í kvöld, mánudag kl.22. Þátturinn fjallar um sjávarútveginn fyrr og nú. Þáttur kvöldsins ber þess merki að bæði þarf að horfa framá við og líka til baka og læra af sögunni.

Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans sest hjá Sölva Tryggvasyni og ræðir um nýsköpun í greininni sem hefur aldrei áður teygt anga sína jafn víða, bæði hér heima og ytra.

Linda Blöndal hittir tvo af þeirri kynslóð sjómanna sem unnu á síðutogurum, nokkuð sem lagðist af uppúr 1970. Reynsla þessara manna er nokkuð sem sjómenn í dag eða fólk almennt getur gert sér í hugarlund, svo harneskjulegar aðstæður biðu manna. 

Þeir Ragnar Franzson og Svavar Benediktsson eru á níræðis og tíræðisaldri og segja eftirminnilega frá þessum tíma þegar þeir unnu á slíkum togurum, frá háseta upp í brúnna.

Margar myndir frá liðinum tíma á síðutogurum eru birtar í þættinum með góðfúslegu leyfi Hafliða Óskarssonar á Húsavík.