Nýr víkingabær rís í mosfellsdal

Fjallað verður um menningartengda ferðaþjónustu í sjónvarpsþættinum Kvikunni með Birni Þorláks á Hringbraut í kvöld. Þar munu þeir Hallgrímur Hólmsteinsson viðskiptafræðingur og Sigurlaugur Jóhannsson sagnfræðingur ræða víkingabæ sem rís innan skamms í Mosfellsdal.

Bærinn mun gera út á upplifun gesta, hann verður veitingahús þar sem aðeins er boðið upp á hráefni hér á landi á víkingatímabilinu. Er hugmyndin að setja á svið stemmninguna á landinu eins og hún var fyrir 1000 árum. Sérstaklega verður lagt upp úr því að börn, innlend sem erlend, finni upplifun við sitt hæfi.

Mikil tækifæri eru vannýtt í ferðaþjónustu hér á landi þar sem sagan og menning landsmanna til forna eru mikil sóknarfæri að mati gesta þáttarins.