Nýr vefur upplýsir akstur þingmanna

Upp­lýs­ing­ar um akst­urs­kostnað alþing­is­manna verða birt­ar á nýrri vefsíðu sem til stend­ur að búa til, að því er ákveðið var á fundi forsætisnefndar Alþingis í gærdag, en þar var rætt um akst­urs­kostnað í til­efni af háum endurgreiðslum þingsins til Ásmund­ar Friðriks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins. 

Að sögn Jóns Þórs Ólafs­son­ar, þing­manns Pírata og 5. vara­for­seta nefnd­ar­inn­ar, var einnig rætt á fund­in­um um hvort Ásmund­ur hafi brotið siðaregl­ur Alþing­is með akstr­in­um, ásamt fleiru sem teng­ist siðaregl­un­um. Hann bend­ir á að hver sem er geti sent er­indi til for­sæt­is­nefnd­ar með rök­stuðningi ef hon­um sýn­ist að þingmaður fari ekki eft­ir siðaregl­um.

\"For­sæt­is­nefnd hef­ur kallað eft­ir því að fá grein­ar­gerð, eins kon­ar sam­an­tekt, frá skrif­stofu Alþing­is um það hvernig þess­um regl­um sem for­sæt­is­nefnd setti út frá lög­um um þing­far­ar­kostnað hef­ur verið fram­fylgt af skrif­stofu Alþing­is. Það er okk­ar lög­bundna skylda að fá það á hreint. Þá gæti komið í ljós að lög­um hafi ekki verið fylgt, sem ým­is­legt bend­ir til,“ seg­ir Jón Þór við mbl.is í tilefni af fundi forsætisnefndar.