Nýr útvarpsstjóri segist ekki vera fulltrúi stjórnmálaflokks

Stefán Eiríksson, nýr útvarpsstjóri, hafnar því að hann sé fulltrúi stjórnmálaflokks í nýja starfinu. Ýmsar kenningar hafa heyrst um það eftir að tilkynnt var um ráðninguna en Stefán segir í samtali við Fréttablaðið að stjórnin hafi staðið faglega að valinu.

„Ég hef auð­vitað heyrt það úr ýmsum áttum að ég sé ýmist hand­bendi borgar­stjóra eða komi úr Sjálf­stæðis­flokknum eða Fram­sóknar­flokknum eða öðrum flokk. Það eru ýmsar kenningar um hvar ég stend í pólitík,“ segir Stefán. Hann segir að ekki sé litið til þannig þátta.

Sjá einnig: Arnþrúður segist hafa verið í lokahópnum: Sakar stjórn RÚV um spillingu „Æ já, heyrðu, þetta er bitlingur“

„Það sem blasti við mér í þessu ferli var að stjórnin stóð fag­lega og afar vel að ráðningunni og valdi ekki á pólitískum for­sendum. Ég gekk ekki að því sem vísu að fá þessa stöðu ég veit að það voru margir fram­bæri­legir um­sækj­endur sem höfðu gefið sig fram en ég er afar þakk­látur fyrir það traust sem að stjórn RÚV sýnir mér með því að velja mig í þetta verk­efni og á­nægju­legt að heyra að það hafi verið góð sam­staða um þá niður­stöðu í stjórninni.“

Þá mætti Stefán í Kastljós í gær og þar sagði hann sig ekki hlynntan því að RÚV yfirgefi auglýsingamarkaðinn líkt og krafa hefur verið uppi um og komið hefur til álita hjá Lilju Alfreðsdóttur, mennta-og menningarmálaráðherra.

„Ég held að það skipti máli fyrir ríkisútvarpið að miðla, meðal annars því sem almenningur vill miðla í gegnum auglýsingar og tilkynningar en þetta er auðvitað líka tekjugrundvöllur.“