Spurningaþátturinn Viti menn á Hringbraut þykir fara vel af stað, enda heldur þar um stjórnvölinn einn reyndasti spurningahöfundur landsmanna, Karl. Th. Birgisson sem hefur marga fjöruna sopið á þessu sviði.
Þáttur Karls er hæfilega gamaldags eins og alvöru spruningaþættir eiga að vera, en þar er spurt um land, sögu og tungu - og ekkert verið að leita út fyrir landsteinana að áhugaverðum spurningum, enda af nógu að taka innanlands í rösklega þúsund ára sögu landsmanna sem enn eru þeirrar gerðar að vilja vita nafnið á næsta fjalli, á, eða blómi.
Þriðji þátturinn af Viti menn fer í loftið klukkan 20:00 í kvöld, en þar eigast við Haukur Már Haraldsson og Salóme Guðmundsdóttir og kemst annað þeirra áfram í keppninni sem alls 16 svarendur taka þátt í, en úrslitin fara fram um miðjan desember.
Í síðasta þætti fór Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu á kostum og komst auðveldlega áfram, en í fyrsta þætti bar Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, sigur úr býtum.
Viti menn eru hálftímalangur þáttur fyrir fólk sem ann hefðbundnum spurningaþáttum og hefst sem fyrr segir klukkan 20:00 í kvöld og er endursýndur strax klukkan 22:00.