Sumardagskrá Hringbrautar tekur á sig endanlega mynd í þessari annari viku júlí - og meðal nýmæla á dagskrá kvöldsins er nýr veiðiþáttur í umsjá Gunnars Bender sem fer um allt land næstu vikur með stöngina sperrta.
Það ber vel í veiði í fyrsta þættinum sem er á dagskrá kælukkan 20:00 í kvöld, en þar er fylgst með þeim félögum Bubba og Bó opna Norðurá með þónokkrum stæl, en Bubbi landaði einum vænum og sleppti honum svo eins og siður hans er við árbakkann. Sú leið hefur mjög fært í vöxt á síðasta áratug eða svo að gefa fiskunum líf í helstu og verðmætustu ánum, nema ef til vill tittunum eru undir hálfum metra en þeir eru vanalega teknir með til matreiðslunnar heima við.
Í þætti kvöldsins verður einnoig fylgst með stangveiðigoðsögninni Þresti Elliðpasyni fanga stóra urriðann í Þingvallavatni, en það er nokkur sjón að sjá.
Í þáttunum Við árbakkann í sumar verður farið í margar helstu veiðiár landsins - og má þar nedna fyrir utan Norðurá perlur á borð við Laxá í Kjós, Langá, Viíðdalsá og drottninguna sjálfa, Laxá í Aðaldal.
Það er Steingrímur Jón Þórðarson sem myndar þessa þætti Gunnars Bender sem eru sem fyrr segir frumsýndir á fimmtudagskvöldum klukkan 20:00.