Sjónvarpsþátturinn Matjurtir hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld en þar mun Auður Rafnsdóttir heimsækja nokkrar vel valdar kynsystur sínar sem kunna að rækta kryddjurtir og annað gott og grænt undir tönn.
Auður er áhugafólki um matjurtir að góðu kunn, en hún hefur um árabil haldið úti áhugaverðum og hagnýtum fróðleik um heimaræktun á fésbókarsíðu sinni sem mörg þúsund Íslendingar hafa notfært sér.
Í þáttunum mun hún taka hús, eða öllu heldur garð, á nokkrum konum sem þekkja gjörla til matjurtaræktunar á harðbýlu Ísalandi, en þær munu ausa úr skálum visku sinnar áhorfendum til upplýsingar og fróðleiks.
Ræktun alls kyns matjurta í heimagörðum, úti á svölum eða einfaldlega í eldhúsglugganum hefur mjög færst í vöxt hér á landi á undanförnum árum með aukinni áherslu fjölmargra landsmanna á hollustufæði. Matjurtaþáttunum er ætlað að koma til móts við alla þá sem hyggjast hefja ræktun eða eru að fikra sig áfram í moldinni heima fyrir, en eins og Ástríður Harðardóttir, fyrsti viðmælandi Auðar í þætti kvöldsins segir, þá gildir að byrja með fáar tegundir og ná árangri með þær áður en menn sigra allan græna heiminn.
Horfðu á þáttinn með því að smella hér.