Nýr þáttur hóf göngu sína á Hringbraut í gærkvöld en þar mun Páll Magnússon fjalla um íslensku leiðina í fíknlækningum frá ýmsum hliðum málsins - og er þar raunar af nógu að taka.
Á sjúkrahúsinu Vogi eru 60 rúm. 24 þúsund einstaklingar hafa komið í áfengis- og vímuefnameðferð til SÁÁ. Helmingur hópsins hefur einungis komið einu sinni í meðferð á meðan 3% af hópnum hefur komið oftar en tíu sinnum.
Af þeim sem koma í meðferð hjá SÁÁ á sjúkrahúsinu Vogi eru að meðaltali 57% enn án áfengis eða annarra vímuefna þegar eitt ár er liðið frá því að meðferð lauk.
Einungis 3% þeirra sjúklinga sem leita aðstoðar á Vogi hafa farið oftar en tíu sinnum í meðferð en tæplega 60% eru edrú í meira en eitt ár.
Þetta er meðal þess sem fram kom í samtali Páls Magnússonar við Þórarin Tyrfingsson, lækni og forstjóra sjúkrahússins Vogs, í þættinum Fíkn á Hringbraut í gærkvöld sem brátt má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þetta er fyrsti þátturinn af fjórum sem Hringbraut og SÁÁ gera í sameiningu um þetta málefni.
Þættirnir verða á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum kl. 20.00 og í endursýningu síðla sama kvöld kl. 22.00.