Nýr sendiráðsbústaður á 500 milljónir

Bústaður sendiherra Íslands í Danmörku við Krathausvej í Charlottenlund á Sjálandi var seldur fyrir 750 milljónir íslenskra króna fyrir réttum áratug sem liður í sparnaði innan utanríkisþjónustu Íslendinga. Nýr bústaður var keyptur á hálfan milljarð króna.


Þessar upplýsiingar hefur hringbraut.is úr bókhaldi Utanríkisráðuneytisins, en eins og fram kom í frétt á hringbraut.is í fyrradag kveðst Utanríkisráðuneytið ekki hafa neitt verðmat á þeim fjölda sendiherrabústaða sem íslenska ríkið á í 12 þjóðlöndum ytra. Ráðuneytið ber það fyrir sig, aðspurt, að margir þessara bústaða hafi verið keypir fyrir áratugum og formlegt verðmat á þeim liggi því ekki fyrir. Það þýðir með öðrum orðum að ríkissjóður heldur ekki uppfært bókhald um eignir sínar erlendis.


Nýi sendiherrabústaðurinn í Danmörku, sem tók við af 750 milljóna króna húsi í Charlottenlund fyrir áratug, er staðsettur á Fuglebakkevej í Frederiksberg, einu dýrasta hverfinu utan miðborgar Kaupmannahafnar. Það þykir mjög veglegt að rými og íburði, enda fátítt að byggt sé af vanefnum í þessu eftirsótta hverfi.


Hringbraut mun á næstu vikum fjalla frekar um sendiherrabústaði Íslendinga erlendis og sögu,eðli og mikilvægi utanríkisþjónustunnar, jafnt á vef sínum  sem og í sjónvarpsþáttum.