Nýr borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri Grænna, Pírata og Viðreisnar verður kynntur fyrir utan Fjölbrautaskólann í Breiðholti klukkan hálf ellefu í dag. Viðræður flokkanna hófust 31. maí og hafa því staðið í tólf daga.
Á blaðamannafundinum á eftir verða málefnaáherslur meirihlutans kynntar og hvernig flokkarnir hyggjast skipa í embætti. Hingað til hefur ekkert verðið gefið upp um það hver verði borgarstjóri í meirihlutasamstarfinu en Vísir segist hafa heimildir fyrir því að Dagur B. Eggertsson verði borgarstjóri áfram.