Dramað í kringum afborganir Grikklands á lánunum til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins líkist helst kafla í grískum harmleik, og er hvergi nærri nálægt lokasenunni.
Þau Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður, Ásgeir Jónsson hagfræðingur og Eiríkur Bergmann Einarsson stórnmálafræðingur ræða um stöðu mála í Heimsljósi í kvöld, en stjórn Alexis Tsipras forsætisráðherra Grikklands setti á síðustu stundu fram tillögur að efnahagsumbótum sem líkur er á að lánadrottnar muni fallast á í lok mánaðarins.
Tsipras og Syrizaflokkur hans dansa nú línudans í kringum kosningaloforðin sem komu flokknum til valda og við það að standa við samninga sem fyrri stjórn Grikklands samdi um við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið. Nýjustu tillögur stjórnvalda virðast fara bil beggja með því að setja nýja skatta á auðmenn og fyrirtæki, hækkun virðisaukaskatts á vissar vörur og þjónustu, hækkun eftirlaunaaldurs en jafnframt verja opinbera starfsmenn og lífeyrisþega gegn frekari niðurskurði.
Í Heimsljósi kvöldsins, sem byrjar klukkan 20:45, verður einnig fjallað um áhrif gríska harmleiksins á evruna og stjórnmálin innan Evrópusambandsins.