Nýr járnmúr: nú gegn flóttafólki?

Ungversk yfirvöld hafa verið harðlega gagnrýnd að fulltrúum annarra Evrópusambandsríkja fyrir að reisa háar og margfaldar víggirðingar meðfram landamærum Ungverjalands og Serbíu, en þær eru þegar orðnar yfir 175 kílómetrar að lengd.
 
Í þessum efnum er spurt hvort verið sé að koma fyrir nýjum járnmúr sem skilur vestanverða Evrópu frá Austurlöndum og öllum fátækum og stríðshrjáðum löndum þar um slóðir. 
 

Þegar hefur verið komið upp þrefaldri víggirðingu úr stálvír sem alsettur er flugbeittum og hvassyddum blöðum meðfram öllum landamærum Ungverjalands og Serbíu. Unnið er hörðum höndum að því að reisa fjögurra metra háa vírgirðingu að auki við þessi sömu landamæri.

Utanríkisráðherra Frakklands sagði víggirðinguna ekki samræmast gildum Evrópusambandsins. Ólíklegt má heita að yfirvofandi þátttaka hersins í landamæragæslunni teljist falla betur að þeim gildum.

Talið er að 3.000 flóttamenn hafi komist yfir landamærin frá Serbíu til Ungverjalands síðasta sólarhringinn, en miklum fjölda þeirra hefur verið komið fyrir í flóttamannabúðum á landamærunum við Serbíu þar sem þeim er haldið á einum og sama stað. Mikil geðshræring er í hópi þessa flóttafólks sem vill ólmt komast til vesturhluta Evrópu og fylgja þar með í fótspor þeirra fjölmörgu sem hafa fengið góðar móttökur í Þýskalandi og fleiri ríkjum þar um slóðir.

Ungverski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu og hefur byrjað sérstakar æfingar sem miða að því að hann taki þátt í því að verja suðurlandamæri Ungverjalands gegn vaxandi straumi flóttafólks.
 

Ungverska ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu þessa efnis á þinginu, og verður hún tekin til umfjöllunar þar á næstu dögum og vikum. Greidd verða atkvæði um hana síðar í mánuðinum, en þá verða einnig greidd atkvæði um nýja og enn strangari löggjöf um landamæragæslu.

Þegar hefur verið komið upp þrefaldri víggirðingu úr stálvír sem alsettur er flugbeittum og hvassyddum blöðum meðfram öllum landamærum Ungverjalands og Serbíu, sem eru 175 kílómetra löng. Unnið er hörðum höndum að því að reisa fjögurra metra háa vírgirðingu að auki við þessi sömu landamæri.

Þessar framkvæmdir hafa vakið hörð viðbrögð vestar í álfunni, ekki síst meðal annarra Evrópusambandsríkja, einkum og sér í lagi Frakka. Utanríkisráðherra Frakklands sagði víggirðinguna ekki samræmast gildum Evrópusambandsins. Ólíklegt má heita að yfirvofandi þátttaka hersins í landamæragæslunni teljist falla betur að þeim gildum.