Nýr framkvæmdastjóri ikea: „það sem helst breytist er að ég þarf að víkka sjóndeildarhringinn“

Stefán Rúnar Dagsson, nýráðinn framkvæmdastjóri IKEA, hefur nánast verið viðriðinn rekstur fyrirtækisins frá fæðingu. Áður en hann tók við af Þórarni Ævarssyni sem framkvæmdastjóri var hann verslunarstjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins.

„Þannig var að móðir mín vann í Hagkaup í mörg ár, en þegar Pálmi fékk leyfið fyrir IKEA og opnaði í nokkur hundruð fermetrum á efri hæðinni í Skeifunni, þar sem skrifstofurnar voru um tíma, þá fór hún yfir. Síðan varð hún þjónustustjóri hjá IKEA í Húsi verslunarinnar,“ segir Stefán Rúnar í samtali við Viðskiptablaðið.

Hann hóf að hlaupa í störf í versluninni frá þrettán ára aldri. „Ég var meðal fyrstu starfsmanna IKEA í Holtagörðunum, fyrst bara að hjálpa verktökunum áður en þar opnaði, en eftir að ég kláraði fjölbrautaskólann fer ég í Tækniskólann og lærði iðnrekstrarfræði. Ég kláraði reyndar aldrei alveg, átti einhver tvö námskeið eftir, en IKEA hringir í mig í lok námsins og býður mér starf í innkaupadeildinni. Síðan verð ég birgðastjóri og svo sölustjóri og stýrði smávörudeildinni. Loks þegar við opnum hér í Kauptúninu þá flyt ég hingað fimm mánuðum fyrir opnun og sinni uppsetningu verslunarinnar hér. Ég þekki orðið hvert einasta skúmaskot í þessari um 22 þúsund fermetra byggingu, til dæmis vita það fáir að það eru göng úr miðju húsinu yfir í annað hús á lóðinni,“ segir hann.

Stefán Rúnar segist hafa verið næstráðandi sem verslunarstjóri og að hann hafi sinnt mikið af daglegum rekstri verslunarinnar. „Það sem helst breytist núna við að taka við framkvæmdastjórn, er að ég þarf að víkka sjóndeildarhringinn í stað þess að hugsa eingöngu akkúrat um daginn í dag.“

Hann hefur ekki tekið ákvörðun um hvort ráðið verði í verslunarstjórastöðuna. „Ég hyggst aðeins sjá bara hvernig það þróast, en undanfarið hef ég einnig verið að sinna framkvæmdaverkefnum mikið, bæði hér innanhúss og að einhverjum hluta á nýjum tæplega 5.000 fermetra lager sem við vorum að opna í Suðurhrauni. Síðan hef ég komið að IKEA smáíbúðunum uppi í Urriðaholti, en þar erum við núna í frágangi utanhúss en að öðru leyti er allt tilbúið og fólk flutt inn.“