Nýr formaður og hvíti hesturinn

Þorgerður Katrín, Goddur og Hildur Baldursdóttir ásamt eiginmanni, Einari Kárasyni um baráttu hjóna við krabbamein Hildar. Snarpar pólitískar umræður í Þjóðbraut í kvöld. 

Nýr formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mætir til Lindu Blöndal á Þjóðbraut.

Goddur mætir í þáttinn. Við ræðum ýmsar birtingarmyndir í pólitíkinni. Má taka hvaða listaverk sem er t.d. í leyfisleysi og skreyta sinn pólitíska flokk með því? Og líka HM – ætlar HM að bjarga sálarlífi þjóðarinnar? Þetta og fleira með Goddi.

Að greinast með brjóstakrabbamein er ekki einkamál  - Hjónin  Hildur Baldursdóttir og Einar Kárason rithöfundur ræða hvernig fara hjón saman í gegnum baráttuna við krabbann. Það er bleikur október.

Pólitíkin er rædd með Höllu Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingfréttaritara og frambjóðanda VG – hún er í 4.sæti í Reykjavík norður. Þórlindur Kjartansson pistlahöfundur Fréttablaðsins skoðar pólitískt landslag með Höllu, Þórlindur starfaði lengi með Sjálfstæðisflokknum. Rúmar 2 vikur í kosningar.