Nýr formaður eflingar skekur markaðinn

Fjármálaspekúlantar telja líkur vera á því að kjör Sólveigar Önnu Jónsdóttur í formannsembætti Eflingar, eins stærsta stéttarfélags landsins, hafi þegar haft áhrif á fjármálamarkaðinn hér á landi, en Sólveig Anna boðar harðar aðgerðir á vinnumarkaði, láglaunafólki til hagsbóta.

Gengi bréfa í kauphöllinni lækkaði skart í gærdag, að því er fram kemur í frétt vb.is og þar af hafa hlutabréf í Icelandair Group lækkað mest, eða um 1,85% þegar þetta er skrifað, en um tíma í gær nam lækkunin yfir 3%. Eins og sami vefur sagði frá í gær, birti félagið flutningstölur sínar eftir lokun markaða í fyradag, sem sýna 5% fækkun farþega. Heimildarmenn blaðsins telja að þar hafi einnig áhrif útleggingar greiningardeildar eins viðskiptabankans út frá þessum tölum, þó þeir telji að þar sé verið að draga of víðtækar ályktanir.

Annað sem hefur gerst síðan markaðir lokuðu og gæti haft áhrif að mati heimildarmanna Viðskiptablaðsins er að Sólveig Anna Jónsdóttir vann formannsslaginn í Eflingu með tilþrifum, sem gæti þýtt aukna hörku í kjarabaráttu og erfiðari samningum í komandi viðræðum á vinnumarkaði, eins og segir í frétt vefjarins. Heimildarmennirnir hans telja þó að þarna sé markaðurinn að ofmeta áhrif þess, en úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,52%, en ekki er um mikil viðskipti að ræða enn sem komið er.

Viðskiptin hafa numið 126 milljónum með bréf Icelandair, 110 milljónir með bréf Marel sem hafa lækkað um 1,54%, en aðalfundur félagsins var í fyrradag, en mestu viðskiptin hafa verið með bréf HB Granda, eða fyrir 158 milljónir en gengi bréfanna hefur staðið í stað.