Niðurstaða Rögnunefndarinnar svokölluðu sem skoðar varanlegt stæði fyrir Reykjavíkurflugvöll liggur fyrir 1. júní. Nefndin, sem er undir forystu Rögnu Árnadóttur fyrrverrandi dómsmálaráðherra og aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar horfir einkum til fimm kosta í stöðunni; Bessastaðaness, Lönguskerja, Hólmsheiðar, Hvassahrauns og Vatnsmýrarinnar. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Ragna að allir þessir kostir séu uppi á borðinu en nú sé unnið að samanburði á þessum kostum þar sem flugtækniupplýsingar, veðurfarsmælingar og jarðfræðilegar upplýsingar eru hafðar til grundvallar.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar þykir líklegast að annaðhvort Hvassahraunið eða Vatnsmýrin verði fyrir valinu. Hólmsheiðin er talin vonlítil sakir veðuraðstæðna og Löngusker og Bessastaðanes ólíkleg sakir umhverfisþátta og kostnaðar. Nefndin skoðar ekki þann kost að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur, en flugrekstraraðilar telja þann flutning algerlega óraunhæfan og rústa rekstrarskilyrðum í áætlunarflugi innanlands.
Líklegast er talið að Vatnsmýrin beri af hvað kostnaðarmat varðar, en þar yrðu brautir færðar til svo auka megi íbúðamagn í kringum völlinn. Kostnaður við algerlega nýjan völl, svo sem í Hvassahrauni, sem er eins og fyrr greinir líklegasti kosturinn þegar Vatnsmýrinni sleppir er vart undir 50 milljörðum króna, en fara þyrfti í gríðarleg jarðvegsskipti á staðnum, svo og að leggja út í viðamiklar endurbætur á gatnakerfinu frá vellinum og inn í hjarta borgarinnar.