Nýr flugvöllur: kemur ekki til greina!

\"22 milljarðar króna í nýjan flugvöll. Kemur ekki til greina að ríkið beri þann kostnað, augljóst að Dagur ætlar borgarbúum að borga brúsann.\" Þetta skrifar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra á fésbókarsíðu sína í dag.

Augljóst er að viðbrögðum við niðurstöðu Rögnunefndarinnar að engin sátt um nást um staðsetningu nýs innanlandsflugvallar í Hvassahrauni. það er ekki aðeins Gunnar Bragi Sveinsson sem bregst forviða við hugmyndinni, heldur ganga viðbrögð af sama tagi þvert á flokkslínur.

Andstöðu við þessa fyrirætlan er raunar að finna innan allra stjórnmálaflokka á Alþingi - og þá er ljóst að margar ef ekki flestar sveitarstjórnir úti á landi munu leggjast af fullum þunga gegn áformunum um flutning flugvallarins út fyrir Reykjavík.  

Nánar er fjallað um viðbrögðin í annarri frétt hér á hringbraut.is undir fyrirsögninni Hvasahraunsvelli tekið fálega.