Nýr breskur prins kom í heiminn um klukkan 11 í morgun, sonur Katrínar hertogaynju af Cambridge og Vilhjálms Bretaprins. Bæði bæði móður og barni heilsast vel.
Stór breskur fáni hefur verið restur á Windsor kastala til að fagna fæðingunni og formleg tilkynning var sett á gyllt statív í hallargarðinum.
Í tísti frá Kensington-höll á Twitter segir að drengurinn sé um 15 merkur og að Vilhjálmur hafi verið viðstaddur fæðingu sonarins. Þá segir líka á Twitter að fjölskyldan, þar á meðal drottningin hafi verið látin vita af fæðingu drengsins.
Nýi prinsinn er nú sá fimmti í erfðaröð krúnunnar. Breskir fjölmiðlar voru með beinar útsendingar frá því í morgun að Katrín var lögð inn á fæðingardeild St. Mary\s-sjúkrahússins í London.
Nýi drengurinn er þriðja barn hjónanna