Bókin sem breytti mér er heiti nýs bókaþáttar sem hóf göngu sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld en þar er þekkt bókafólk fengið til að veljaþær þrjár bækur sem hafa skipt það mestu máli í lífinu.
Það var sjálf Silja Aðalsteinsdóttir sem reið á vaðið og valdi þær bækur sem eru henni efst í huga eftir að hafa lesið slíkan fjölda bóka að vart verður jafnað við lestur annarra landsmanna, enda er Silja í hugum margra ekkert minna en táknmynd bókarinnar.
Bækurnar sem Silja kom með í þáttinn voru þessar:
Fólkið á Steinshóli, eftir Stefán Jónsson - raunsönn barnabók sem opnaði ævintýrin.
Hroki og hleypidómar, eftir Jane Austen - ástarsagan sem Silja hefur lesið oftar en tölu verður á komið.
Salka Valka, eftir Halldór Kiljan Laxness - því fáir ef nokkrir rithöfundar kunna betur að skrifa um kvenfólk.
Þáttunum, sem eru í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarssonar, er ætlað að vekja athygli á þeim bókum sem fólk beinlínis verður að lesa, en oft og tíðum fara lestrarhestar á mis við stórkostlegar bækur sem liggja í þagnargildi og hafa ekki fengið þá umfjöllun sem þær eiga skilið.
Bókin sem breytti mér er á dagskrá á fimmtudagskvöldum í vetur klukkan 20:30, en hægt er að nálgast þáttinn á hringbraut.is.