Nýnasistar myndu fagna umskurðarbanni

Hvítir þjóðernissinnar og nýnasistar mundu fagna löggjöf um bann á umskurði drengja hér á landi sem þeirri fyrstu í Evrópu síðan í seinni heimsstyrjöldinni þar sem land reynir að verða „Judenrein“ eða laust við gyðinga.

Þetta kemur fram í umsögn Jonathans Greenblatts, forstöðumanns bandarísku samtakanna Anti-Defamation League, við frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur og átta annarra þingmanna þar sem lagt er til að refsivert verði að umskera drengi. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, meðal annars af embætti Landlæknis en líka biskupi Íslands og biskupi kaþólsku kirkjunnar.

Í umsögn sinni segir Greenblatt að bann við umskurði myndi þýða að engin gyðingafjölskylda gæti sest að hér.

RÚV skýrði frá þessu.