Nýjung: heilsutíminn á hringbraut

Heilsutíminn er heiti nýs þáttar sem hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld, en þar verður megináherslan lögð á fræðandi og upplýsandi umræðu um heilsurækt og bættan lífsstíl.

Þátturinn er fyrsta samvinnuverkefni Fréttatímans og Hringbrautar, en umsjármaður hans er Gígja Þórðardóttir sem starfað hefur á Fréttatímanum undanfarin misseri, en sjálf er hún menntaður sjúkraþjálfari.

Meðal gesta í fyrsta Heilsutímanum eru Ágústa Johnson og Linda Hilmarsdóttir sem gjörþekkja líkamsræktargeirann, en þær hafa rekið heilsurækt um langt árabil, Ágústa hjá Hreyfingu og Linda hjá Hress.

Teitur Guðmundsson, læknir verður fastagestur í þáttunum og mun fjalla um algeng heilsuvandamál fólks, en Teitur er kunnur af skrifum sínum um þessi efni.

Þá verða sjúkraþálfarar með sinn fasta póst í þættinum og ráðleggja fólki hvernig það getur beitt líkama sínum á betri vegu og eins verður áhugaverð umfjöllun um næringarfræði og íþróttanudd í þessum fyrsta þætti.

Loks er fastur liður í hverjum þætti að heimsækja áhugaverða staði sem bjóða upp á heilsubót, en í kvöld verður einmitt kíkt á á nýstárlegt hreyfimynstursnámskeið  í Mörkinni. 

Heilsutíminn verður vikulega á dagskrá á mánudagskvöldum klukkan 20:00 og er endursýndur strax klukkan 22:00.