Fasteignakaup verða auðveldari og afborganir léttari fyrir nýja kaupendur á fasteignamarkaði verði tillögur ríkisstjórnarinnar í frumvarpi til laga um stuðning við kaup á fyrstu íbúð samþykktar.
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynntu aðgerðir á blaðamannafundi í Hörpu í dag sem á að auðvelda ungu fólki að eignast sína fyrstu fasteign. Fram kom að séreignastefnan hafi undanfarið lotið í lægra haldi og þetta mun rétt það af.
Styðja á við þá sem vilja taka óverðtryggð lán þar sem samspil greiðslna inn á höfuðstól og afborganir gera greiðslubyrði þeirra á fyrstu árum sambærilega við löng verðtryggð lán hjá þorra einstaklinga. Lausnin er fyrir ungt fólk sem er að eignast fyrstu íbúð.
Frumvörp um þetta verða kynnt á næstu dögum. Það er kveðið á um þrjár leiðir: Heimild til úttektar á uppsöfnuðu viðbótariðgjaldi til kaupa á fyrstu íbúð, heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi inn á höfuðstól láns yfir tíu ára samfellt tímabil og þriðja leiðin er heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi sem afborgun inn á óverðtryggt lán og sem greiðslu inn á höfuðstól þess. Hringbraut sendi hluta af kynningunni út í kvöld þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson kynnti úrræðin. Þau minna að mörgu leyti á það sem kallað var áður fyrr „skyldusparnaður“, þar sem nokkurra ára sparnaður er notaður til að kaupa fyrstu íbúð.