Nýjar vélar fí með þeim elstu í heiminum

Flugvélarnar þrjár sem FÍ tekur senn í flugflota sinn verða í hópi elstu flugvéla sinnar tegundar sem notaðar eru í reglulegu farþegaflugi. Þetta fullyrðir sérfræðingur um flugmál. Sérfræðingurinn hafði samband við hringbraut.is vegna frétta gærdagsins þar sem sagði af ítrekuðum bilunum í fyrstu vélinni af þremur sem tekin var í notkun fyrir skömmu fyrir innanlandsflugið. Hann vill ekki koma fram undir nafni en hefur engra hagsmuna að gæta vegna samkeppni við FÍ eftir því sem Hringbraut kemst næst.

Sérfræðingurinn segir alrangt sem komið hafi fram í fréttum að fyrsta vélin sem flogið hefur verið innanlands í nokkrar vikur af þremur sem FÍ kaupir og hefur á þeim tíma bilað a.m.k. þrisvar sé ný en brögð hafi verið að slíkum misskilningi. Vélin sé með raðnúmerið 4033, TF-FXI. Fyrsta vél þessarar tegundar til flugfélags hafi verið með raðnúmerið 4003  en númer 4001 og 4002 hafi verið í eigu framleiðandans. \"Raðnúmerið sannar að vélin er 30. elsta vél þessarar tegundar í heiminum af öllum þeim sem framleiddar voru,\" segir sérfræðingurinn.

Hinar tvær Bombardier vélarnar koma í vor, önnur í apríl en hin í maí eftir því sem fram kom í viðtali Hringbrautar í gær við forstjóra Flugfélags Íslands. Þær munu að sögn sérfræðingsins hafa númerin 4022, TF-FXA og 4038, TF-FXB. Fyrrnefnda vélin verður þegar hún tekur flugið innanlands í 18. sæti yfir elstu vélarnar af þessari tegund í heiminum af þeim sem fóru til flugfélaga að sögn sérfræðingsins. \"Að minnsta kosti fimm af eldri vélum sem voru framleiddar eru farnar úr rekstri þannig að vélarnar verða ekki mikið eldri en þetta.\"
Fram kom hjá Árna Gunnarssyni, forstjóra Flugfélags Íslands í fréttaviðtali við Hringbraut í gær, að hundruð véla væru í notkun víða um heim af Bombardier vélunum sem framleiddar eru hjá Dash. Hann aftók að flugöryggi farþega væri stefnt í tvísýnu. Fremur hefðu orðið óþægindi farþega vegna bilana. Hann útilokaði ekki að byrjunarörðugleikar hefðu komið upp þar sem flugvirkjar innanlands væru ekki vanir að fást við þessa gerð af flugvélum. Hann vonaðist til að því lærdómsferli væri nú lokið.

Sérfræðingurinn bendir á að eitt sé flugfloti af ákveðinni tegund en annað sé aldur vélanna.  Þá hafi því ítrekað verið haldið fram að vélarnar hafi komið frá SAS sem sé einföldun. \"Jú, þetta eru upphaflega SAS vélar en þeim var skilað frá SAS árið 2007. Sðan hafa þær farið á milli flugfélaga og í geymslu á víxl en þó mismikið. Síðasta flugfélagið til að hafa allar þrjár í rekstri var Air Niugini í Papa New Guinea. Samkvæmt airfleets.com voru allar þrjár settar í geymslu árið 2015,\" segir sérfæðingurinn.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingkona hefur gagnrýnt harðlega að nýkeypta vélin hafi ítrekað bilað. Þingkonan var farþegi um borð í vél sem þurfti að lenda harkalega að hennar sögn í Keflavík á dögunum eftir að bilun kom í veg fyrir að henni yrði lent á fyrirhuguðum áfangastað.

Hún hefur opinberlega farið fram á skýringar og viðbrögð frá FÍ.