Hvað hefur komið fyrir x-d?

Morgunblaðið birtir í dag könnun sem framkvæmd var fyrir blaðið. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann könnunina sem gerð var dagana 16. til 19. október. Könnunin er kjördæmaskipt.

Úrtakið var 3.900 manns og svöruðu 2.395.  Vikmörk er líkast til nokkuð há þegar reiknað er út fylgi framboða eftir kjördæmum og einnig skipting þingsæta því stundum eru fái á bak við tölurnar.

Viðreisn er sterkust í kjördæmi Þorgerðar Katrína Gunnarsdóttur en framboðið fengi 3 þingsæti. Forysta Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er nokkur. Vinstri grænir mælast sterkir í Reykjavík eins og Píratar. Samfylkingin er að ná sér á strik í Reykjavík. Björt framtíð og Flokkur fólksins fá ekki þingsæti og Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mælast ekki sterkir.

Fram hjá þessu verður þó ekki horft í Valhöll.  Sjálfstæðisflokkurinn (17,3%) er smærri flokkur en bæði Vinstri grænir (29,6%)  og Samfylkingin (17,9%) í Reykjavík norður. Í Reykjavík suður er staðan önnur. Vinstri grænir með 27,9% og Sjálfstæðisflokkurinn með 24,3%.

Spyrja má: Hvað hefur komið fyrir þennan flokk í Reykjavík - sem áður var höfuðvígið hans?  Það er hrunið. Er þetta sök frambjóðendanna eða sök málefnanna?   

Lesa má um þessa könnun á vef Morgunblaðsins www.mbl.is    

[email protected]