Borgarlína hefur verið mjög til umfjöllunar síðustu misseri en borgaryfirvöld áforma að hlutur almenningssamgangna fari á næstu árum úr 4% í 12%. Ef hjólandi og gangandi verða um 8% þá eru 80% eftir sem ferðast um á einkabílnum. Jóhann J. Ólafsson, lögfræðingur og stórkaupmaður, hefur mikið skrifað um þessi mál, en hann er gestur Björns Jóns Bragasonar í fréttaskýringa- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.
Jóhann vill að við beinum sjónum að þessum 80% og bendir á að einkabíllinn sé mjög dýr og mengandi ferðamáti. Þá þurfi gríðarlegan fjölda bílastæða hvarvetna um borgarlandið, en jafnan sé aðeins einn farþegi í hverjum bíl og þeir standi auðir lungann úr deginum.
„Ég er ekki á móti strætisvögnum, en þeir leysa ekki nema lítinn hluta vandans og fara ekki þangað sem við eigum erindi. Einkabíllinn fer „door to door“ frá dyrum til dyra. Önnur þróun yrði afturför. Menn eiga ótal erind um hið dreifða borgarsvæði oft á dag. Strætisvagnar fara ekki þangað sem við ætlum nema í undantekningartilfellum. Ég legg til að við hagnýtum deilihagkerfið og tökum í notkun níu manna bíla með bílstjóra sem fara um alla borgina og taka upp farþega og skila þeim hverjum og einum á sinn áfangastað.“
Hugmynd Jóhanns gengur út á að nýta tölvutæknina og farsímana til að skapa nýtt ferðakerfi um borgina:
„Allir hafa farsíma og skrá inn upphafsstað t.d „HG 20“ (Hverfisgata 20) og áfangastað „LNV 12“ (Laugarnesvegur 12). Höfuðtölvan tekur við pöntuninni og kemur henni til næsta bíls. Tölvan staðfestir pönunina í símann og segir hvenær næsti bíll kemur. Á leiðinni að Lauganesvegi 12 fara farþegar úr og nýjir koma inn. Kostnaður dreifist á alla farþega og lækkar með fleiri notendum. Þetta er ekki eins þægilegt og einkabíll en nærri því. Þú þarft ekki að borga fyrir bílastæði og hefur bílstjóra og ert laus við bílinn í ferðalok.“
Með þessu móti megi spara stórfé og bílarnir verði í notkun allan daginn. Þá megi draga stórkostlega úr mengun. Jóhann hefur kynnt þessar hugmyndir fyrir ráðamönnum og fleirum en fengið lítil sem engin viðbrögð:
„Menn segja ekki einu sinni að þetta sé ekki hægt. Ég tel að ástæðan sé að menn leggi allt traust sitt á strætisvagna og að almennasamgöngur eigi að vera í eigu hins opinbera. Ég tel að leigubílstjórar eigi að taka þessa þjónustu að sér og eiga kerfið þegar bílarnir verða bílstjóralausir.“