Katrín Jakobsdóttir þingmaður VG, spurði heilbrigðisráðherra á þingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir hvort rétt væri að til stæði að bjóða að hluta eða í heild út heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.
Yfirgnæfandi meirihuti landsmanna styðji að stærri heilbrigðisstofnanir séu reknar með félagslegum hætti til að tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Katrín vitnaði til að ráðherra hefði sagt í fréttum að ekki skipti öllu máli hver ræki hvað. „Er rétt að unnið sé að því að bjóða út rekstur heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu að hluta eða í heild?“ Var spurning Katrínar.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra svaraði að þegar á árinu 2013 hefði hann kynnt áætlun um að vinna að endurbótum á heilsugæslu, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Þar sé gert ráð fyrir að fyrirkomulagi á greiðslu til heilsugæslumála verði breytt. 15 stöðvar séu nú reknar og þar af tvær í einkarekstri. Ekki standi til að bjóða út rekstur allra 15.
Katrín sagðist þá vilja vita hvort það væri 100% að ekki yrði boðinn út rekstur þeirra 13 stöðva sem ekki væru í einkarekstri. Ætti þá að stofna nýja heilsugæslustöð og bjóða rekstur hennar út?
Kristján Þór svaraði að bjóða ætti upp á tvo kosti, bæði einkareknar stöðvar en einnig hefðbundnar. Verið væri að skoða möguleika á að fjölga stöðvum en ráðherra sagði ekkert um hvort nýjar stöðvar myndu byggja á einkarekstri.