Sá orðhvati og eiturbeitti þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er segir að framsæknustu pólitíkina á Íslandi verði að finna á hinni róttæku miðju á næstu árum, ekki til jaðranna á vinstri- og hægrivængnum.
\"Ég hef litla trú á, að gagnlegt sé að efla róttæka hægrið eða róttæka vinstrið,\" skrifar hann á vefsvæði sitt, jonas.is í dag. \"Hvort tveggja,\" segir hann \"er gömul lumma frá 20. öld.\"
Framtíðina telur hann vera á hinni róttæku miðju: \"Flestir Íslendingar eru á íhaldsmiðju. Þar hafa vinstri sjálfstæðismenn og hægri jafnaðarmenn löngum verið á svipuðum slóðum. Þeim þarf að lyfta upp úr fortíðinni. Það getur ný, róttæk miðja gert. Miðja, sem hugsar allt upp á nýtt, án þess að endurtaka kreddur af 20. öld.\"
Hann segir Pírata hafa staðsett sig á róttækri miðju, stundum á anarkískri miðju, samkvæmt mannvali og stefnu: \"En þeir verða að gæta sín á Trójuhestum frá hægri jaðrinum og vinstri jaðrinum,\" skrifar Jónas í dag, vel læs á þjóð sína sem fyrr.