Biblían, höfuðtrúarrit kristinna manna og sú bók sem mest hefur mótað vestræna menningu, er nú í fáanleg sem rafbók - í fyrsta skipti á íslensku.
Fyrr á árinu endurnýjuðu JPV útgáfa og Hið íslenska Biblíufélag samning um útgáfu Biblíunnar. Upphaflegi samningurinn var gerður 2004 og ný þýðing Biblíunnar sá dagsins ljós árið 2007 þar sem hún var prentuð í tvílit í fyrsta sinn á Íslandi.
Á þessum tímamótum var einnig ákveðið að gefa Biblíunnar út í rafrænni útgáfu á árinu, sem nú hefur tekist.