Nýir þingmenn eiga að vera óhræddir

Þrír Alþingismenn af 24 sem hætta á þingi eftir kosningarnar á laugardag eru í viðtali á Þjóðbraut í kvöld kl.21.30. Þau þekkja öll að hafa leitað til eldri og reyndari þingmanna þegar þau settust á þing fyrst. 

Katrín Júlíusdóttir, fráfarandi þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi ráðherra, Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar og Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírati hætta öll á þingi eftir laugardag.

Þau þekkja öll að hafa leitað til eldri og reyndari þingmanna þegar þau settust á þing. Í umræðum um starf Alþingismannsins í kvöld og hvernig er að hefja störf sem nýr þingmaður sögðust öll hafa lært margt á skömmum tíma.  Mikilvægt væri fyrir nýja þingmenn að óttast ekki ræðustól Alþingis og byrja sem fyrst að máta sig þar og þjálfa sig í umræðum úr pontu.

Endurnýjun á Alþingi verður mikil eftir þingkosningarnar á laugardaginn. Fjöldi þingmanna eða 24 af 63 hætta á þingi.

Mikið rót hefur verið á þingsætum í undanförnum kosningum og virðist sem það sé nýr veruleiki að slíkt verði áfram.

Í síðustu þrennum Alþingiskosningum hafi orðið miklar mannabreytringar - þriðjungur þingmanna var nýr 2007, tæplega fjörutíu prósent þingmanna í kosningunum tveimur árum seinna og sama hlutfall  í síðustu þingkosningum. Einnig var mikil endurnýjun á þingi, enn fyrr eða árið 2003