Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, voru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Þar ræddu þeir kjarasamningana sem voru undirritaðir á miðvikudagskvöld af tæplega 30 stéttarfélögum og SA og þau vandamál sem gætu komið upp í næstu lotu af kjaraviðræðum.
Kjarasamningar ríkis- og bæjarstarfsmanna losnuðu 1. apríl og vonast Logi og Þorsteinn til þess að hinir víðtæku samþykktu kjarasamningar hjálpi til í kjaraviðræðum ríkis- og bæjarstarfsmanna, en telja þó að það gæti reynst erfitt.
„Það er það sem er vandasamt í þessu, auðvitað vonar maður að þessir samningar greiði fyrir kjarasamningum á opinbera markaðnum. En það er ýmislegt sem flækir málin þar líka, breytingar á meðhöndlun lífeyrissparnaða, ég bendi á að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er verið að skera niður jöfnunarsjóðsgjald til sveitarfélaga. Sveitarfélög eru í mjög erfiðum rekstri, stytting vinnuviku á stofnunum og fyrirtækjum eins og hjúkrunarheimilum og spítölum munu þýða að það þarf bara að manna meira, það verður dýrari rekstrarkostnaður. Hvernig eiga sveitarfélög að mæta þessu?“ spyr Logi.
Þorsteinn tekur í sama streng. „Þetta gætu orðið mjög snúnir kjarasamningar fyrir sveitarfélögin, af því að sveitarfélögin eru með mjög fjölmennan hóp láglaunafólks þannig að samningarnir munu verða mjög kostnaðarsamir fyrir sveitarféölgin. Það hefur verið, og gagnrýnt raunar, að launastigið hafi verið allt of lágt, bent á það sem veikleikamerki að það sé ekki sanngjörn skiptingin milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að fjármögnun. Fyrir vikið hafa sveitarfélög þurft að þrengja mjög að sér á undanförnum árum. Við eigum eftir að sjá hvernig þeim gengur að takast á við kjarasamningalotuna sem er framundan gagnvart þeim.“
Umræður Loga og Þorsteins má finna í heild sinni hér: