Íslenski sjávarklasinn er drifkrafur nýrra hugmynda og stuðlar klasinn að samstarfi fyrirtækja og frumkvöðla í sjávarútvegi.
Starfsemin fer fram í Húsi sjávarklasans. Þar er samfélag sextíu og fimm fyrirtækja. Allt frá nýstofnuðum sprotum sem eru að stíga sín fyrstu skref yfir í útibú rótgróinna fyrirtækja.
Út er komin hjá Klasanum greining sem ber heitið Nýbúar í hafinu kringum Ísland: Tækifæri eða ógnir. Stórfróðleg lesning sem vekur lesendur til umhugsunar.
Með hækkun sjávarhita hafa búferlaflutningar fiska á Norður Atlantshafi aukist. Þessir flutningar geta haft umtalsverð áhrif á íslenskar sjávarbyggðir. Hver eru líkleg áhrif þessara breytinga hérlendis á næstu árum?
Það eru engin einhlít svör við þessari spurningu. Ástæða er þó til að skoða þessi mál. Og meta hvernig undirbúa má sig sem best fyrir mögulegum breytingum.
Íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessum breytingum. Skýrasta dæmið um það eru breytingar á hegðun makríls í Norður Atlantshafi. Þær leiddu tikl aukinna veiða á makríl. Og milliríkjadeilna.
Um leið og útgerðir búa sig undir breytta tíma er einnig mikilvægt að skoða þau tækifæri sem nýbúar í hafinu í kringum landið kunna að skapa.
Nánar www.sjavarklasinn.is