Sjónvarpsþátturinn Tara og Trixin verður á sínum stað í kvölddagskrá Hringbrautar í kvöld, en þátturinn hóf göngu sína í síðustu viku og vakti strax mikla athygli fólks sem hefur áhuga á förðun og hárgreiðslu.
Þáttunum er ætlað að kenna fólki hvernig það getur farðað sig og greitt og haft sig að öllu leyti til, en þar kann Tara trixin eins og vel kemur fram í þessum líflegu og skemmtilegu þáttum hennar.
Í öðrum þættinum í kvöld fær hún til sín nýbakaða móður sem fær yfirhalningu og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu frá einu skrefi til annars.
Í þáttunum er einnig kynning á því nýjasta sem er að hafa af vörulínum sem skipt geta sköpum þegar útlit fólks er annars vegar.