Ný umferðarlög tekin í gildi um áramótin

Um áramótin munu taka gildi ný umferðarlög sem samþykkt voru á Alþingi í júní síðast liðnum. Ýmsar breytingar fylgja þessum nýju lögum sem mikilvægt er að almenningur hafi góða yfirsýn yfir, enda varða umferðarlög alla vegfarendur á Íslandi.

Í því skyni að kynna breytingarnar hefur Samgöngustofa tekið saman þær allra helstu og sett fram með aðgengilegum hætti á einum stað á vefsíðu sinni.

Meðal breytinga á umferðarlögum sem varða umferðaröryggi almennings má nefna:

  • Tekinn hefur verið af allur vafi um ökuljós. Þau skulu ávallt vera kveikt, óháð aðstæðum.
  • Bann við notkun snjalltækja við akstur ökutækja – einnig reiðhjóla – er gert skýrt.
  • Umferðarfræðsla skal fara fram á öllum skólastigum: Í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.

Fyrir frekari upplýsingar má ýta hér og lesa um breytingarnar á Samgöngustofu.