Ný stjórn fka

Ný stjórn FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu var kosin á aðalfundi félagsins.

Frambjóðendur í stjórn voru fjórar konur í þrjú sæti.

Kosningu í stjórn hlutu Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Viðlagatrygginga Íslands, Lilja Bjarnadóttir lögmaður og eigandi Sáttaleiðin ehf. og Anna Þóra Ísfold ráðgjafi og eigandi Isfold markaðsráðgjöf hlaut endurkjör.

Áfram sitja í stjórn frá fyrra ári þær Áslaug Gunnlaugsdóttir lögmaður og einn eiganda LOCAL lögmanna, Guðrún Ragnarsdóttir ráðgjafi og meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Strategíu ehf., Ragnheiður Aradóttir stofnandi og eigandi viðburðafyrirtækisins PROevents og þjálfunarfyrirtækisins PROcoaching og formaður FKA, Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Spyr.

FKA mun á næsta ári fagna 20 ára starfsafmæli sínu en ríflega 100 konur voru skráðar í nefndar- og deildarstörf fyrir starfsárið 2018-2019.

Alls 1150 konur eru virkir félagsmenn í FKA.

Meðal stærri verkefna FKA síðastliðin ár hefur verið átak til að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum, aukin hlutdeild kvenna í stjórnum félaga og nú síðast verkefnið Jafnvægisvogin, sem ætlað er að stuðla að aukinni hlutdeild kvenna í efra lagi fyrirtækja.