Thomas Bach forseti alþjóðaólympíunefndarinnar sagði eftir lokaathöfn vetrarleikanna í S-Kóreu að það hefði enn á ný sannast hvernig íþróttir bættu heiminn. \"Við sjáum nýja sjónarrönd,\" sagði Back og vissulega má það til sanns vegar færa því íþróttafólk Norður- og Suður Kóreu gekk hlið við hlið á lokaathöfn leikanna í gær eins og á setningarathöfninni.
Það skyggði þó á athöfnina í gær að rússneska liðinu var meinað að ganga undir rússneska fánanum í kjölfar tveggja lyfjabrota. Samt var tilkynnt að rússneska ólympíunefndin fengi á ný aðild að ólympíusambandinu eftir fjögurra ára útlegð í kjölfar lyfjahneykslisins mikla í Sochi fyrir fjórum árum.
Framganga Norðmanna á leikunum var sérlega glæsileg og þeir standa uppi sem sigurvegarar. Ekki aðeins í metfjölda verðlauna sem urðu alls 39 talsins eins og við höfum fylgst með, heldur varð Marit Bjørgen göngukappi sigursælasti keppandi vetrarleikanna frá upphafi. Hún fékk fimm verðlaun og alls eru verðlaun hennar orðin 15 á leikunum, þar af átta gull. Hún er jafnframt í þriðja sæti yfir ólympíukeppendur allra tíma. Marit er 37 ára gömul og var stoltur fánaberi Noregs á lokaathöfninni í gær.