Ný ráð við sykursýki á meðgöngu

Í sjónvarpsþættinum Heilsutímanum á Hringbraut í gærkvöld var fjallað um heilsu móður og barns, en þar komu fram margar mjög merkilegar upplýsingar um það efni.

Meðal annars var fjallað um afar merkilega rannsókn næringarfræðinga á þeim fæðutegundum sem eru helst taldar koma í veg fyrir meðgönguysykursýki sem er alvarlegt heilsufarsvandamál margra kvenna á meðan þær ganga með barn sitt. Íslendingar hafa vakið athygli víða erlendis í þessum efnum, en þeir eru sagðir fremstir meðal þjóða í mæðra- og ungbarnavernd.

Í Heilsutímanum er leitað fanga hjá mörgum sérfræðingum á sviði heilbrigðis, þjálfunar og næringar, en fastur sérfræðingur þáttarins er Teitur Guðmundsson, læknir. Þátturinn er unninn í samvinnu við Fréttatímann sem kemur út undir helgi og er dreift inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.

Þáttinn má nálgast hér