Ný íslensk heimildarmynd um Alzheimer-sjúkdóminn, Hugarhvarf eftir Pál Steingrímsson, sem frumsýnd var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á mánudagskvöld vakti mikla athygli og umtal í samfélaginu.
Mikill fjöldi fólks hefur tjáð sig um ágæti myndarinnar en hún þykir sýna ferðalag roskinnar konu á leið inn í myrkviði sjúkdómsins á afar sannferðugan og einlægan hátt. Í einni umsögninni var reyndar haft á orði að myndin hafi "farið óþægilega nálægt raunveruleikanum."
Hringbraut hefur sýnt fjölda heimildarmynda Páls á þessum tíma á mánudagskvöldum frá því stöðin hóf útseningar síðla febrúar í vetur. Þær hafa notið mikilla vinsælda meðal áhorfenda stöðvarinnar, enda vandaðar í allri sinni gerð og fjalla á næman hátt um mannlíf, menningu landsmanna og náttúrufar.
Áratugur er frá því Páll byrjaði að vinna við heimildarmyndina Hugarhvarf, en frumkvæði að gerð hennar áttu þrjár hjúkrunarkonur sem hafa unnið um langt árabil með Alzheimer-sjúklingum og aðstandendum þeirra og fannst vanta heimildarmynd um hlutskipti þessa hóps í samfélaginu sem er ekki endilega sá fyrirferðarmesti í dægurumræðunni.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Kristbjörg Kjeld og Gísli Alfreðsson, sem bæði fara hreinlega á kostum í leik sínum, en Páll segir að það hafi verið hrein unun að vinna með þeim við gerð myndarinnar, slíkt fagfólk hafi þar verið á ferð að hver dagur í tökum hafi verið hreinlega yndislegur. Þulur í myndinni er Arnar Jónsson leikari.
Myndin var frumsýnd klukkan 21:00 á mánudagskvöld, en til stendur að endursýna hana að kveldi 17. júní í næstu viku vegna sterkra viðbragða og fjölda óska um endursýningu hennar.