Ný könnun: píratar rjúfa 40% múrinn

Píratar rjúfa 40% múrinn í fyrsta sinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö, sem greint er frá í Fréttablaðinu í dag. Píratar mælast þar með nærfellt 42% fylgi, en voru í fyrri könnun sömu aðila með 36.3%, en hún var gerð í nóvember.
 
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata segist aðspurð í blaðinu ekki vita fyllilega hverju þetta sæti, en hún sé bæði þakklát og auðmjúk með enn eina staðfestingu þess að Píratar séu langstærsti flokkur landsins, en svo hefur hann mælst samfellt í heilt ár.
 

Sjálfstæðisflokkurinn fær næstmestan stuðning í könnuninni; 23,2% þeirra sem afstöðu taka segjast styðja hann. Hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins dalað töluvert milli kannana, eða um ríflega sex prósentustig. Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri hreyfingin - Grænt framboð virðast njóta álíka mikils fylgis, um 10% aðpurðra segjast styðja hvern þeirra um sig.

Könnunin var gerð dagana 26. og 27. janúar. Alls var hringt í 1.158 manns, eða þar til náðst hafði í 801. Athygli vekur að aðeins 56% þeirra sem náðist í tóku afstöðu. Í könnun MMR, sem birt var í síðustu viku, mældust Píratar með 37,8% fylgi.