Píratar hækka enn flugið ef marka má nýjustu fylgiskönnun sem markaðs- og könnunarfyrirtækið MMR hefur gert en hún sýnir að Píratar mælast nú með 35% fylgi, tveimur prósentustigum meira en í síðasta mánuði.
MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á tímabilinu 22. til 30. júlí 2015. Fylgi Pírata mældist nú 35,0%, borið saman við 33,2% í síðustu könnun sem lauk lauk 30. júní síðastliðinn og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1%, borið saman við 23,8% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,2%, borið saman við 10,6% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,2%, borið saman við 12,0% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,6% borið saman við 9,3% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 4,4%, borið saman við 5,6% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
Ef kosningar færu á þessa leið töpuðu framsóknarmenn helmingi þingsæta sinna, Samfylkingin þremur mönnum og Björt framtíð kæmi ekki manni að.