MMR hefur birt nýja könnun um fylgi stjórnmálaflokkanna. Sjálfstæðisflokkur og Píratar hafa, samkvæmt könnuninni, tapa verulegu fylgi frá kosningum. Könnunin var gerð daga 7. til 14. nóvember.
Vinstri græn og Björt framtíð hafa hins vegar aukið fylgi sitt umtalsvert.
Sjálfstæðisflokkur er stærstur flokkana og mælist með 26 prósenta fylgi, en flokkurinn fékk 29,1 prósent í kosningunum í síðasa mánuði.
Vinstri græn mælast nú með 20,7 prósenta fylgi, en VG fékk 15,8 prósent í kosningunum.
Píratar mælast nú með 111,9 prósent en þeir fengu 14,4 prósent í kosningunum.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,6 prósent en Viðreisn fékk 10,4 prósent í kosningunum.
Björt framtíð mælist nú með 9,6% en hún fékk 7,2 prósent í kosningunum.
Framsókn tapar, mælist nú með 9,4% en Framsókn fékk 11,5% í kosningunum.
Samfylkingin nú með 5,6% fylgi en kjörfylgi Samfylkingarinnar var 5,8%.